17.1.2013 | 16:54
Æfingin á morgun - athugið tíma - verður 17:30
Stelpur mínar.
Æfingar á föstudögum verða hér eftir kl. 17:30. Ég vissi ekki af þessari breytingu fyrr en nú. Vinsamlega látið það berast fyrir æfinguna á morgun. Sunnudagsæfingarnar verða svo ýmist kl. 10 eða 18 í Risanum (ég mun láta ykkur vita nokkrar æfingar fram í tímann hvor tíminn verður). Ég læt ykkur fá lista yfir æfingar og leiki janúar og febrúar mánaða á allra næstu dögum en ljóst að það verður nóg að gera á næstunni.
Leikir með 3.flokki á föstudag og laugardag. Eftirfarandi leikmenn eru beðnir um að spila með 3. flokki á föstudag kl. 21 (50 mínútna leikur, mæting 20:00) og á laugardag kl. 15 (mæting 14) á Ásvöllum: Katrín, Alexandra J., Þórdís, Dagrún, Kapinga, Nadía, Andrea, Áslaug, Sunna. Látið mig vita sem fyrst hvort þið komist eða ekki. Þið þurfið EKKI að mæta á æfingu hjá 4.flokki í dag.
Næstu leikir eru svo: 25.1. hjá B liðinu á móti FH á Ásvöllum kl. 17:30, Íslandsmót innanhúss í Garðinum 26.1. (er í vinnslu á KSÍ síðunni) og líklega frestaður leikur gegn ÍBV á sunnudeginum 27.1. hjá A liðinu (tímasetning liggur ekki fyrir).
Stelpur svo vil ég sjá 100% mætingu á næstu dögum !!!!
Athugasemdir
ég kemst :)
Þórdís Elva (IP-tala skráð) 17.1.2013 kl. 18:31
Ég mæti ;)
Katrín (IP-tala skráð) 17.1.2013 kl. 20:38
Ég kemst
Áslaug Marta (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 15:12
ég mæti
Alexandra j (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 15:40
Kemst ekki á æfingu, myndi komast ef hann væri á réttum tíma :(
Vera (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 16:21
mæti í báða leikina :)
Dagrún Birta (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 16:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.